Undarlega tíkin - hvatning til alvöru kjósenda

Ég hóf formleg og full afskipti af pólitík (þeirri alræmdu tík) fyrir rúmu ári.
Ein af fjölmörgum ástæðum þess að ég valdi VG sem vettvang var sú staðreynd að VG er flokkur sem hefur kvenfrelsi sem eina af sínum grunnstoðum. Í mörg ár hef ég verið rammfemínískur og furðað mig á því [...]

Lesa meira

Af fíflum og sóleyjum á kjördag

Nei, ég ætla ekki og vil ekki falla í þá gryfju að kalla kjósendur fífl eins og Þráinn Bertelsson gerði. En ég er hrifnari af sóleyjum, það játa ég fúslega.
- - -
Ég get ekki annað en „stolið“ þessum setningum úr bloggi Illuga Jökulssonar sem hann skrifar eftir sjónvarpsumræður gærkvöldsins og [...]

Lesa meira

REI og MAGMA - vinnubrögðin sem vilja gleymast

Í samningnum segir orðrétt:
Trúnaður
Aðilar eru sammála að gera sitt besta til að halda tilveru og innihaldi þessa Samnings í ströngum trúnaði og að veita engar upplýsingar varðandi þennan samning til annarra en stjórnarmeðlima, bæjarfulltrúa/meðlima bæjarstjórna/borgarráðs, yfirmanna, starfsmanna, og bókhaldslegra, lagalegra og fjárhagslegra ráðgjafa eins og með þarf til að meta [...]

Lesa meira

Hvað er málið með þetta útsvar?

„Við ætlum ekki að hækka skatta“ segir Hanna Birna.
„Við ætlum ekki að skerða grunnþjónustuna“ segir Hanna Birna.
Og maður veltir því fyrir sér hvernig hún ætlar að leysa fjárhagsvandann á næstu árum. Kannski með því að hækka gjaldskrár borgarinnar? Eins og hún hefur gefið í skyn að sé í spilunum.
Hvaða áhrif hefur það á [...]

Lesa meira

Góðir hlutir gerast í dag

Eftir mánaðalanga bið hefur loksins einhver verið handtekinn og settur í gæsluvarðhald. Hreiðar Már varð fyrstur. Hver ætli verði næstur? Hversu langur verður listinn?
Og eftir mikið þóf hefur tillaga Vinstri-grænna um sérstaka rannsóknarskýrslu fyrir Reykjavík verið samþykkt í borgarráði. Enda varla vanþörf á því að rannsaka tengsl stjórnmálamanna í borginni við [...]

Lesa meira

VGR fjallar um rannsóknarskýrsluna

Næsta sunnudag kl. 11-15 stendur VGR fyrir félagsfundi í þjóðfundaformi um rannsóknarskýrslu Alþingis. Hvet alla til að koma og taka þátt í ræða efni skýrslunnar.
Nánari upplýsingar:
Vinstri-græn í Reykjavík boða til umræðufundar um rannsóknarskýrsluna. Til fundarins er boðið öllum félögum í VG, kjörnum fulltrúum og frambjóðendum. Heilbrigðis, fjármála- og umhverfisráðherra hafa þegar skráð sig á fundinn. [...]

Lesa meira

Nafnlausi flokkurinn læðist með veggjum

Stefán Pálsson er skyggn drengur og gerðist forspár fyrir rúmri viku um kosningataktík Sjálfstæðisflokksins. Þar spáði hann því að flokkurinn - sem eðlilega fæst við margþætta ímyndarkrísu - myndi ekki flíka nafni sínu á mjög áberandi hátt í kosningabaráttunni.
Vörumerkið Sjálfstæðisflokkurinn er enda ekki sveipað sérlega jákvæðri áru um þessar mundir.
Í Fréttablaði dagsins birtist svo stór [...]

Lesa meira

Smiðurinn sem hjólaði í bakarann

Bjarni Ben ákvað að beina spjótum sínum að Þorgerði Katrínu til að bjarga eigin skinni. Og það gæti því miður tekist.
Því miður, segi ég, því að nálægð Bjarna sjálfs við íslenskt viðskiptalíf setur hann á miklu grárra svæði en Þorgerði Katrínu. Auðvitað á hann að víkja sem formaður og víkja af [...]

Lesa meira

Ritstjórinn sem hætti að skilja pólitík

Ólaf Þ. Stephensen ritstjóra þekki ég ekki persónulega, en ég hef alltaf gert ráð fyrir því að hann skildi í meginatriðum um hvað stjórnmál snúast. Þess vegna kom mér á óvart að lesatóninn í leiðara Fréttablaðsins í dag, en þar er hann að skamma Vinstri græn fyrir að vilja enn einu sinni standa í vegi [...]

Lesa meira

Fábjánaprósentan

Ég veit ekki með þessa 5% fábjána-umræðu. En ég veit það bara að allir þessir venjulegu Íslendingar sem ég sá á bókamarkaði í Perlunni um helgina kunna að meta góðar bókmenntir.Þeir kunna að meta þá staðreynd að alltaf eru allir að skrifa bækur og gefa þær út. Svo við hin getum lesið og notið.
Þeir kynnu [...]

Lesa meira