Archive for the ‘Pólítík’ Category

Undarlega tíkin - hvatning til alvöru kjósenda

Saturday, May 29th, 2010

Ég hóf formleg og full afskipti af pólitík (þeirri alræmdu tík) fyrir rúmu ári.

Ein af fjölmörgum ástæðum þess að ég valdi VG sem vettvang var sú staðreynd að VG er flokkur sem hefur kvenfrelsi sem eina af sínum grunnstoðum. Í mörg ár hef ég verið rammfemínískur og furðað mig á því hversu margir (og margir vel þenkjandi einstaklingar) vilja ekki taka undir það sjónarmið að ójafnvægið á milli kynjanna sé enn alvarlegt.

Það er alveg rétt að við höfum náð árangri - en miklu betur má ef duga skal.

Þess vegna fagnaði ég því mikið að Sóley Tómasdóttir fékk umboð frá félögum í VG til að leiða listann í borgarstjórn. Þá vissi ég að VG var tilbúið til að umfaðma femínisma sem raunverulega hugmyndafræði.

Svo hófst kosningabaráttan með tilheyrandi niðurrifi. Sem virðist því miður vera að takast upp að einhverju marki.

Það hefur tekist að mála Sóleyju Tómasdóttur upp sem hættulega konu sem hati karlbörn. Konu sem vilji karlmönnum allt illt. Og svo framvegis og svo framvegis.

Að Sóley sé málefnalegur stjórnmálamaður sem hafi þegar sannað sig í borgarkerfinu og að hún berjist af einurð fyrir réttindum bágstaddra hefur ekki verið fjallað um.

- - - -

Í þessari lokafærslu minni fyrir lok kosninga vil ég hvetja alvöru karlmenn og alvöru konur sem vilja alvöru jafnrétti til að taka ekki trúanlegar ódýrar og grimmilegar gróusögur sem eru á sandi byggðar.

Ég vil hvetja alvöru kjósendur til að þora að kjósa VG með Sóleyju innanborðs.

Af fíflum og sóleyjum á kjördag

Saturday, May 29th, 2010

Nei, ég ætla ekki og vil ekki falla í þá gryfju að kalla kjósendur fífl eins og Þráinn Bertelsson gerði. En ég er hrifnari af sóleyjum, það játa ég fúslega.

- - -

Ég get ekki annað en „stolið“ þessum setningum úr bloggi Illuga Jökulssonar sem hann skrifar eftir sjónvarpsumræður gærkvöldsins og vona að hann fyrirgefi mér það. Slóðin á bloggið er neðst í færslunni:

Hvað Vinstri græna snertir, þá verð ég að segja að ég skil ekki þá bylgju andúðar sem mætt hefur Sóleyju Tómasdóttur í kosningabaráttunni. Mér sýnist manneskjan vera full af eldmóði, og ég trúi því ekki að fólk láti skipta máli einhver orð sem hún lét falla í viðtali um að hún hafi í fyrstu ekki talið sig vita hvernig hún ætti að ala upp strák.

Henni er líka legið á hálsi fyrir að gera býsna herská kvenréttindakona, en er öfgafull jafnréttisstefna (!) virkilega mesta hættan sem steðjar að íslensku samfélagi um þessar mundir?

Og Sóley má eiga að hún sagði að fyrra bragði sannleikann um að Vinstri grænir teldu sig þurfa að hækka útsvar; hún var ekkert að fara í feluleik með það. Gott hjá henni.

Vinstri grænir fá líka prik í kladdann hjá mér fyrir tillögu sem Þorleifur Gunnlaugsson annar maður á lista hefur flutt um öfluga rannsóknarnefnd í borginni. Hún á að fara yfir og skoða samskipti borgarkerfis og fyrirtækja mörg ár aftur í tímann.

Það á loksins að rannsaka samskipti verktaka, borgarfulltrúa; vonandi verður lýst oní alla gömlu spillingarpyttana og ormagryfjuna sjálfa.

Svona nefnd mun geta gerbylt vinnubrögðum í borgarkerfinu mun róttækar en nokkuð það sem t.d. Besti flokkurinn býður upp á.

Illugi Jökulsson

http://www.dv.is/blogg/tresmidja/2010/5/29/hvad-eg-ad-kjosa/

REI og MAGMA - vinnubrögðin sem vilja gleymast

Thursday, May 27th, 2010

Þetta skjal er ekki til - Magma

Í samningnum segir orðrétt:

Trúnaður

Aðilar eru sammála að gera sitt besta til að halda tilveru og innihaldi þessa Samnings í ströngum trúnaði og að veita engar upplýsingar varðandi þennan samning til annarra en stjórnarmeðlima, bæjarfulltrúa/meðlima bæjarstjórna/borgarráðs, yfirmanna, starfsmanna, og bókhaldslegra, lagalegra og fjárhagslegra ráðgjafa eins og með þarf til að meta þennan Samning. Þar að auki gera Aðilarnir sér grein fyrir því að Félagið og/eða hluthafar í Félaginu geta krafist afrits af þessum Samningi til þess að geta ákveðið hvort þeir vilji nýta eða afsala sér forkaupsrétti í samræmi við samþykktir Félagsins.

- - -

Gaman að þessu. Mér finnst eins og þetta sé alveg gleymt. Mér finnst eins og ekkert hafi náðst að ræða það í þessari kosningabaráttu hvernig vinnubrögðum hefur verið beitt í borginni undanfarin ár, sérstaklega þegar höndlað er með skipulagsmál og auðlindir almennings.

Mér finnst eins og einhverjir hljóti að fara illa út úr því þegar sérstök rannsóknarnefnd um rekstur borgarinnar hefur lokið störfum. Þessir sömu einhverjir bjóða sig samt fram núna og tala um stöðugleika - áfram.

Picture 2

Þessi mynd hefur gengið manna á milli í dag.  Hún er mjög dramatísk - þess bera merki andlit fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í bakgrunninum.

Svona til upprifjunar er hér bloggfærsla Sóleyjar Tómasdóttur frá því í ágúst í fyrra. Hún tekur saman í stuttu máli allt það spillingarklúður sem gekk undir nafninu REI en hefur núna fengið umpólun og endurskírn og heitir MAGMA:

Muniði eftir REI?

REI-málið var stærsta klúður Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks í sveitarstjórnarmálum fram til þessa - enda sprakk það í andlitið á þeim, meirihlutinn sprakk, borgarstjórinn missti traust síns eigin fólks og borgarbúa og í kjölfarið tók við margra mánaða vinna við uppgjör málsins á hinum pólítíska vettvangi.

Fyrirhuguð sameining REI og Geysis Green Energy var unnin í loftköstum, málin voru illa eða ekkert kynnt þeim sem raunverulega ábyrgð báru í málinu og vinnubrögðin miðuðu öll við hagsmuni einkaaðilanna. Asinn, leyndin og samráðsleysið var harðlega gagnrýnt.

Þess utan var hagsmuna almennings ekki gætt í samningnum sjálfum, þar sem Geysir Green Enenrgy hefði fengið einkaafnot af þekkingu og mannauð Orkuveitu Reykjavíkur, hefði fengið vörumerkið til afnota og fleira og fleira.

Síðan eru liðin tvö ár. Nú hefur verið boðað til fundar í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, þar sem til stendur að samþykkja kaup fyrirtækjalepps í Svíþjóð á hlut Orkueitunnar í HS-orku. Engin gögn liggja fyrir vegna málsins. Ekki verður veittur lengri frestur til að kanna möguleika á opinberri eigu til hlítar. Formaður stjórnar leggur mikið upp úr því að drífa málið af - og forsvarsmaður Magma stærir sig af árangri sínum gegnum tíðina í þágu hluthafa.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ætlar að selja auðlindir almennings fyrir kúlulán með veði í skúffufyrirtæki í Svíþjóð. Fjárhagslegur ábati er vandséður - og ljóst að samfélagsleg áhrif skipta ekki máli.

Stundum er talað um að kjósendur hafi gullfiskaminni. Ég efast um það. Í þessu tilfelli virðist sem minni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sé farið að förlast.

Hvað er málið með þetta útsvar?

Thursday, May 20th, 2010

„Við ætlum ekki að hækka skatta“ segir Hanna Birna.

„Við ætlum ekki að skerða grunnþjónustuna“ segir Hanna Birna.

Og maður veltir því fyrir sér hvernig hún ætlar að leysa fjárhagsvandann á næstu árum. Kannski með því að hækka gjaldskrár borgarinnar? Eins og hún hefur gefið í skyn að sé í spilunum.

Hvaða áhrif hefur það á tekjulága og tekjuháa? Skoðaðu myndina hér að neðan og sjáðu muninn á útsvarshækkun og gjaldskrárhækkun.

Picture 1

Vinstri-græn vilja jafna kjörin í samfélaginu. Að fullnýta útsvar er leið til þess. Þannig dreifist skattbyrðin eðlilega, í stað þess að flatar gjaldskrárhækkanir skapi margfalda kjaraskerðingu fyrir þá sem eru með lægri laun.

Það þarf ekki að koma á óvart að Sjálfstæðismenn segist ekki ætla að hækka skatta. Það hentar tekjuháum. Það hljómar vel. Það er slagorð sem er auðvelt að trúa. Eða vilja trúa.

Staðreyndin er hins vegar sú að það er illskásti kosturinn. Og við þorum að segja það - fyrir kosningar.

Góðir hlutir gerast í dag

Thursday, May 6th, 2010

Eftir mánaðalanga bið hefur loksins einhver verið handtekinn og settur í gæsluvarðhald. Hreiðar Már varð fyrstur. Hver ætli verði næstur? Hversu langur verður listinn?

Og eftir mikið þóf hefur tillaga Vinstri-grænna um sérstaka rannsóknarskýrslu fyrir Reykjavík verið samþykkt í borgarráði. Enda varla vanþörf á því að rannsaka tengsl stjórnmálamanna í borginni við fjársterka aðila.

- - - -

Manni getur farið að líða eins og eitthvað sé að snúast á betri veg.

- - - -

Og á sunnudaginn ætlar VG í Reykjavík að standa fyrir stórum umræðufundi með þjóðfundasniði - umræðuefnið verður rannsóknarskýrsla Alþingis. Allt að gerast.

VGR fjallar um rannsóknarskýrsluna

Wednesday, May 5th, 2010

Næsta sunnudag kl. 11-15 stendur VGR fyrir félagsfundi í þjóðfundaformi um rannsóknarskýrslu Alþingis. Hvet alla til að koma og taka þátt í ræða efni skýrslunnar.

Nánari upplýsingar:

Vinstri-græn í Reykjavík boða til umræðufundar um rannsóknarskýrsluna. Til fundarins er boðið öllum félögum í VG, kjörnum fulltrúum og frambjóðendum. Heilbrigðis, fjármála- og umhverfisráðherra hafa þegar skráð sig á fundinn. Fundurinn verður haldinn sunnudaginn 9. maí kl. 11-15 að Vesturgötu 7 og verður með svokölluðu þjóðfundarsniði. Umsjónarmaður fundarins verður Hervör Alma Árnadóttir.

Rætt verður um áhrif innihalds rannsóknarskýrslunnar á okkur og hvernig við getum brugðist við því sem þar stendur með velferð samfélagsins að leiðarljósi. Stefnt er að því að afurðir fundarins verði fólgnar í ályktun sem borin verður upp í lok fundarins og í hugmyndalista af aðgerðum sem birtur verður á heimasíðu VGR að fundinum loknum.

Klukkan 13:00 verður boðið upp á súpu, brauð og hummus til að létta andann. Nú er lag til að ræða hina ítarlegu rannsóknarskýrslu með góðum félögum – takið daginn frá.

Vegna skipulags á fundinum er skráning nauðsynleg – sendið póst á kristjan@hi.is með nafni og símanúmeri fyrir kl. 18:00 föstudaginn 7. maí.

Nánari upplýsingar veita Davíð í s: 864 7200 og Kristján Ketill í s: 869 1026.

Nafnlausi flokkurinn læðist með veggjum

Monday, May 3rd, 2010

Stefán Pálsson er skyggn drengur og gerðist forspár fyrir rúmri viku um kosningataktík Sjálfstæðisflokksins. Þar spáði hann því að flokkurinn - sem eðlilega fæst við margþætta ímyndarkrísu - myndi ekki flíka nafni sínu á mjög áberandi hátt í kosningabaráttunni.

Vörumerkið Sjálfstæðisflokkurinn er enda ekki sveipað sérlega jákvæðri áru um þessar mundir.

Í Fréttablaði dagsins birtist svo stór auglýsing frá flokknum þar sem vörumerkið Sjálfstæðisflokkurinn kemur hreint hvergi fyrir.

Aðeins ogguponsulítið og sætt blátt merki með listabókstafnum - XD. Sárasaklaust.

- - - - -

Það er auðvelt að finna til með Sjálfstæðismönnum - ætli það sé ekki vont að hafa óhreina samvisku og geta ekki einu sinni komið fram undir nafni?

Smiðurinn sem hjólaði í bakarann

Saturday, April 17th, 2010

Bjarni Ben ákvað að beina spjótum sínum að Þorgerði Katrínu til að bjarga eigin skinni. Og það gæti því miður tekist.

Því miður, segi ég, því að nálægð Bjarna sjálfs við íslenskt viðskiptalíf setur hann á miklu grárra svæði en Þorgerði Katrínu. Auðvitað á hann að víkja sem formaður og víkja af þingi. Og auðvitað reynir hann að spinna og spinna og spinna til að koma í veg fyrir það. Guð gefi að honum takist það ekki, því að Íslandi verður betur borgið að öllu leyti ef Sjálfstæðisflokkurinn - þessi ógnarstóri stjórnmálaflokkur - getur orðið heilbrigðari.

Og ekki eru þessar síðustu breytingar til batnaðar:

Sigurður Kári kemur inn fyrir Illuga.

Óli Björn Kárason kemur inn fyrir Þorgerði.

Ekki beint Nýja-Ísland. Ekki beint til marks um dauða frjálshyggjunnar.

Ritstjórinn sem hætti að skilja pólitík

Tuesday, March 23rd, 2010

Ólaf Þ. Stephensen ritstjóra þekki ég ekki persónulega, en ég hef alltaf gert ráð fyrir því að hann skildi í meginatriðum um hvað stjórnmál snúast. Þess vegna kom mér á óvart að lesatóninn í leiðara Fréttablaðsins í dag, en þar er hann að skamma Vinstri græn fyrir að vilja enn einu sinni standa í vegi fyrir mannlífi á Suðurnesjum.

Skammirnar eru matreiddar þannig að Vinstri græn séu haldin eins konar trúarblindu sem komi í veg fyrir að þau taki yfir höfuð skynsamar ákvarðanir. Ólafur orðar þetta svona: „Flokkurinn virðist ófær um að taka afstöðu til nýrra atvinnutækifæra út frá öðru en eigin hugmyndafræði.“ Leiðarinn heitir því skáldlega nafni „Trúaðir segja nei“.

Og þar hittir hinn íhaldssami ritstjóri einmitt naglann á höfuðið. Vinstri græn notast ekki bara við hugmyndafræði sína á tyllidögum, ekki bara þegar þannig viðrar, ekki bara þegar þannig blása vindar. Vinstri græn hafa það nefnilega fram yfir suma aðra flokka að hugmyndafræðin er skýr og hún er nothæf. Við þurfum ekki að staldra við í hvert einasta skipti sem málin koma upp og velta hlutunum endalaust fyrir okkur.

Þannig getum við hafnað þeirri hugmynd að virkjanir eigi að reisa sem víðast, án þess að taka tillit til náttúrunnar.

Þannig getum við hafnað því að spilavíti sé gott og heilbrigt atvinnutækifæri.

Þannig getum við hafnað því að strípibúllur séu eðlilegur hluti af vestrænu samfélagi.

Þannig getum við hafnað því að loðið einkafyrirtæki í skúffu í Hollandi, sem þjónustar stríðsrekstur, sé góð nýsköpun.

Út frá því sem Ólafur kallar trúarblindu - en er í rauninni skýr og heilbrigð hugmyndafræði.

- - - -

Svo er ekki verra að minnast þess að aðrir flokkar eiga sína hugmyndafræði - sín eigin „trúarbrögð“. Við erum einmitt núna stödd í drullupolli afleiðinga þess að Sjálfstæðismenn keyrðu sín trúarbrögð áfram, óáreittir, í alltof mörg ár - trúnna á frelsi markaðarins.

Fábjánaprósentan

Wednesday, March 3rd, 2010
Ég veit ekki með þessa 5% fábjána-umræðu. En ég veit það bara að allir þessir venjulegu Íslendingar sem ég sá á bókamarkaði í Perlunni um helgina kunna að meta góðar bókmenntir.Þeir kunna að meta þá staðreynd að alltaf eru allir að skrifa bækur og gefa þær út. Svo við hin getum lesið og notið.

Þeir kynnu kannski enn betur að meta bókaflóðið ef þeir vissu að þegar upp er staðið lifa afar fá skáld á því að skrifa bækur og gefa þær út.

Meðal annars vegna þess hve markaðurinn er lítill. Meirihluti allra rithöfunda vinnur fyrir sér með öðrum hætti en ritstörfum. Meirihluti höfunda er bara að sinna djúpstæðu áhugamáli sínu, ást á tungumáli og sögum, og sættir sig við að hafa lítið upp úr krafsinu.

Ríkið hefur reynt að meta þetta menningarframlag í verki með því að skapa a.m.k. einhvern grundvöll fyrir skáld sem eyða ævinni í að skrifa. Sá grundvöllur heitir listamannalaun.

Og ef ekki væri fyrir listamannalaun væri úrvalið í Perlunni umtalsvert rýrara.

Getum við a.m.k. rætt málið á þessum nótum?

- - - -
Eða getum við rætt það í samhengi við aðra þætti mannlífsins og framlag ríkisins til þeirra?
Til dæmis til íþrótta?
Hvern ætli halli á þar?