Archive for the ‘Umhverfismál’ Category

Hræddra manna orðræða

Thursday, February 4th, 2010

Grein af Smugunni, 4. febrúar 2010:

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, stendur í ströngu þessi misserin – hennar er að höndla það erfiða hlutverk að vernda landið fyrir ágangi þeirra félagasamtaka (og einstaklinga) sem vilja „nýta“ náttúruna til að stuðla að „atvinnuuppbyggingu“ til að „bjarga Íslandi“ út úr ógöngunum.

Gott og vel – þetta er barátta hagsmunasamtaka og sem slík á hún rétt á sér. En hvernig fer baráttan fram?
saheimasida

Ég hef, fyrir mitt leyti, aldrei vitað önnur eins læti og í kringum Suðvesturlínu; aldrei séð hagsmunasamtök og verkalýðssamtök stunda jafn grimmdarlegan lobbýisma og var beitt gegn ákvörðunum umhverfisráðherra fyrr í vetur.

Og nú er komið að neðri hluta Þjórsár. Þar skal virkjað, segja menn, sama hvað það kostar. Það er synd að nýta ekki þetta gullna tækifæri til að reisa „umhverfisvænar“ virkjanir, eins og þeir orða það gjarnan.

Orðræðan um allt eða ekkert

Á Fésbókarsíðu minni hef ég lent í orðaskiptum við gamlan félaga minn um þessi mál. Hann er drengur góður, en alveg á kafi í kunnuglegri orðræðu um virkjanir og náttúruna. Hann vildi meina að Hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps væri nú ekki sérlega kát með Svandísi þessa dagana. Þegar ég svaraði því til að almennir íbúar á svæðinu væru kannski frekar kátir (enda eru þessar fyrirætlanir umdeildar) brást hann við með því að segja að svona mál væru ekki einkamál heimamanna, þeir væru ekki „þeir einu sem eiga hagsmuna að gæta. Við erum rúmlega 300 þúsund og þar af eru 16 þúsund atvinnulausir.“

Sem sagt: Þegar heimamannarökin dugðu ekki til var gripið til þess að við yrðum að virkja fyrir heildarhagsmuni þjóðarinnar.

Á Austfjörðum var einmitt farið í glórulausar virkjanaframkvæmdir til að stuðla að atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Þær áttu líka að virka sem vítamínsprauta fyrir landið í heild sinni, en þegar upp er staðið áttu þær stóran þátt í að valda gríðarlegri þenslu sem öll þjóðin sýpur seyðið af í dag. Framkvæmdirnar ollu líka svæðisbundinni þenslu á Austfjörðum með tilheyrandi uppbyggingarbrjálæði sem var í góðu samhengi við væntingarnar en engu samhengi við raunveruleikann. Og raunveruleikinn er sá að núna standa fjölmargar nýjar íbúðir tómar á Austfjörðum og almennt atvinnulíf er langt í frá blómstrandi.

Fyrir hverja starfa Samtök atvinnulífsins? Og fyrir hverja ekki?

Þegar rógsherferðin gegn umhverfisráðherra stóð sem hæst í vetur fletti ég upp aðildarfélögum í Samtökum atvinnulífsins. Þar kom í ljós að þau eru átta talsins. Berum tvö þeirra saman. Samorka (samtök orku- og veitufyrirtækja) stendur fyrir 1.500 ársverk. Samtök ferðaþjónustunnar standa hinsvegar fyrir 6.500 ársverk.

Hvar stigu SA fast niður fæti og heimtuðu að eitthvað yrði gert fyrir ferðaþjónustu í landinu? Hvar var lobbýisminn fyrir því að ferðaþjónustan hlyti aukin fjárframlög frá ríkinu? Af hverju hefur SA barist með kjafti og klóm fyrir því að virkjanir og stóriðja hljóti vel smurt brautargengi í gegnum kerfið – en ekki horft til annarra starfsgreina af neinu viti? Af hverju hefur SA ekki krafist þess að ráðherrar sjái í gegnum fingur sér hvað varðar lagaumgjörð ferðaþjónustunnar til að hægt sé að laða til landsins erlenda fjárfesta (les: erlenda ferðamenn)?

Af hverju? Ég veit ekki. Kannski hafa þeir bara ekki áhuga á hreinum gjaldeyristekjum.

Þess er gaman að geta að 1) eitt starf í ferðaþjónustu kostar margfalt minna en að búa til eitt starf í stóriðju og 2) þegar kemur að nýlegum veltutölum er ferðaþjónustan nánast á pari við stóriðjuna.

Hvernig tala hræddir strákar?

Og svona rétt að lokum: Hvernig er hægt að taka mark á samtökum sem kjósa að setja málflutning sinn fram með ofangreindum hætti? Svona lítur forsíða heimasíðu Samtaka atvinnulífsins út í dag. „Umhverfisráðherra á móti framförum og orkunýtingu“.

Má ég biðja um að menn fullorðnist, hætti vælinu, láti af rætninni og velji að vinna með stjórnvöldum en ekki gegn þeim með lúabrögðum af þessu tagi?

Davíð Stefánsson

Hvað má blóðrásin kosta? (Er það ekki hin eilífa spurning?)

Wednesday, September 16th, 2009

Á morgun, fimmtudag, heldur VG í Reykjavík málfund með léttum veitingum þar sem fjallað verður um almenningssamgöngur í Reykjavík. Dagskrá hér fyrir neðan og Fésbókar-viðburður hér: Skrá mig á Fésbók.

Hvað má blóðrásin kosta?
Málfundur Vinstri grænna um almenningssamgöngur í Reykjavík

17. september 2009 kl. 17.00-21.00
Vesturgötu 7, Reykjavík

17.00-18.00 Erindi
Pétur Gunnarsson, rithöfundur flytur ávarp
Árni Þór Sigurðsson, alþingismaður - Þjóðhagsleg hagkvæmni almenningssamgangna
Pálmi Randversson, verkfræðingur - Góðar samgöngur, betri borg
Smári Ólafsson samgönguverkfræðingur - Leiðarkerfi Strætó bs
Margrét Guðnadóttir, læknir - Notandinn/þolandinn!

18.00-19.00 Umræður
19.00-19.30 Matur í boði Vinstri grænna í Reykjavík

19.30-21.00 Hópastarf
Þjóðhagsleg hagkvæmni almenningssamgangna
Betri borg
Leiðarkerfið - er úrbóta þörf?

Hóparnir halda svo áfram störfum og skila niðurstöðum á fundi borgarmálahóps mánudaginn 5. október nk.

Af hverju að mótmæla í dag kl. 14?

Tuesday, September 15th, 2009

Af því að salan á HS Orku er fyrsta skrefið í því að leggja framtíð Íslands í rúst - með því að hluta innviðina sundur.

Af því að eignarhald á auðlindum á að vera sameign okkar - auðlindirnar á ekki að selja!

Af því að þetta mál er mjög svo óþægilega REI-farakennt.

Af því að ennþá - þrátt fyrir hrun þeirrar hugmyndafræði sem kraumar í reykfylltum bakherbergjum - ríkir fullkomin leyndarhyggja hjá þeim aðilum sem að þessu máli koma; ennþá, í september 2009, þegar krafan er gegnsæi, opin vinnubrögð og heiðarleiki:

hsorka_903929

Þessi er stemmningin, í boði einkavæðingarflokkanna:

Trúnaður

Aðilar eru sammála að gera sitt besta til að halda tilveru og innihaldi þessa Samnings í ströngum trúnaði og að veita engar upplýsingar varðandi þennan samning til annarra en stjórnarmeðlima, bæjarfulltrúa/meðlima bæjarstjórna/borgarráðs, yfirmanna, starfsmanna, og bókhaldslegra, lagalegra og fjárhagslegra ráðgjafa eins og með þarf til að meta þennan Samning. Þar að auki gera Aðilarnir sér grein fyrir því að Félagið og/eða hluthafar í Félaginu geta krafist afrits af þessum Samningi til þess að geta ákveðið hvort þeir vilji nýta eða afsala sér forkaupsrétti í samræmi við samþykktir Félagsins.

Benda þessi vinnubrögð til þess að aðilar málsins séu að vinna að bestu lausninni - fyrir íslenska þjóð?

Komdu á palla Ráðhússins kl. 14:00 í dag.

Mótmælum!

Að afhenda auðlindirnar - XD og XB hefja leikinn að nýju

Monday, September 14th, 2009

Á morgun kl. 14 fjallar borgarráð um „söluna“ á HS Orku til Magma Energy Sweden.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks vill á þeim fundi ganga að tilboði Magma og hefja þar með einkavæðingarferli sem ýmsir sáu fyrir í kjölfar kreppunnar - að hingað kæmu erlendir „fjárfestar“ sem næðu að kaupa auðlindir og verðmæti Íslands á mestu örvæntingartímum þjóðarinnar, fyrr og síðar.

Það er ekkert leyndarmál að ég er almennt á móti því að einkavæða grunnþjónustu og að við gefum frá okkur auðlindirnar.

En það hlýtur að vera lágmark að slíkt sé gert á löglegan og hagkvæman hátt, ef það er á annað borð gert.

Sú er ekki raunin í þessu tilfelli. Mjög margt hefur verið tínt til sem gefur ástæðu til að skoða málið betur, en ráðandi flokkar í borgarstjórn - einkavæðingarflokkarnir sem einkavæddu fiskinn, Símann og bankana - vilja keyra málið í gegn. Strax. Án frekari málalenginga. Jafnvel þótt hart sé deilt um raunverulega hagkvæmni þessara viðskipta, þar sem stór hluti þeirra er í formi kúlulána með veðum í sjálfu fyrirtækinu.

Hér er samt alvarlegasti ágallinn: Óvíst er að Magma Energy Sweden MEGI yfir höfuð kaupa HS Orku, enda hefur fyrirtækið enga starfsemi í Evrópu. Sjá t.d. umfjöllun á Stöð 2 í kvöld („Gengið frá Magma-samningnum“) þar sem nefnd á vegum Alþingis efast um lögmæti þessara viðskipta.

Maður veltir því fyrir sér, fyrir hönd XD og XB, hvers vegna flokkarnir geta ekki/vilja ekki staldra við og fá svona lagað á hreint. Af hverju þessi asi? Það orð hefur farið af Hönnu Birnu borgarstjóra að hún hafi innleitt ný vinnubrögð í borginni, vinnubrögð sátta og samræðu, þvert á flokkslínur? Hvar er sá vilji núna?

Af hverju fær maður á tilfinninguna að þetta sé mál sem VERÐI að fara óbreytt í gegn, hvað sem það kostar, sama hvað tautar og raular, sama hvað lögmæti líður?

Kl. 14 á pöllum Ráðhússins. Láta í sér heyra, þannig að fulltrúar einkavæðingarflokkanna þurfi a.m.k. að horfast í augu við óánægða kjósendur um leið og þeir afhenda auðlindir þjóðarinnar á silfurfati.