Archive for the ‘Menning’ Category

Fábjánaprósentan

Wednesday, March 3rd, 2010
Ég veit ekki með þessa 5% fábjána-umræðu. En ég veit það bara að allir þessir venjulegu Íslendingar sem ég sá á bókamarkaði í Perlunni um helgina kunna að meta góðar bókmenntir.Þeir kunna að meta þá staðreynd að alltaf eru allir að skrifa bækur og gefa þær út. Svo við hin getum lesið og notið.

Þeir kynnu kannski enn betur að meta bókaflóðið ef þeir vissu að þegar upp er staðið lifa afar fá skáld á því að skrifa bækur og gefa þær út.

Meðal annars vegna þess hve markaðurinn er lítill. Meirihluti allra rithöfunda vinnur fyrir sér með öðrum hætti en ritstörfum. Meirihluti höfunda er bara að sinna djúpstæðu áhugamáli sínu, ást á tungumáli og sögum, og sættir sig við að hafa lítið upp úr krafsinu.

Ríkið hefur reynt að meta þetta menningarframlag í verki með því að skapa a.m.k. einhvern grundvöll fyrir skáld sem eyða ævinni í að skrifa. Sá grundvöllur heitir listamannalaun.

Og ef ekki væri fyrir listamannalaun væri úrvalið í Perlunni umtalsvert rýrara.

Getum við a.m.k. rætt málið á þessum nótum?

- - - -
Eða getum við rætt það í samhengi við aðra þætti mannlífsins og framlag ríkisins til þeirra?
Til dæmis til íþrótta?
Hvern ætli halli á þar?

Af kjöti, karpi og kotru í kvöld

Monday, December 28th, 2009

Þessi jólahátíð var óvenju afslöppuð og hugguleg, ekki síst fyrir þá staðreynd að ég náði að versla nær allar jólagjafir á Indlandi og þurfti því lítið að flakka á milli verslana síðustu dagana fyrir jól. Og Kringlan og aðrir verslunarklasar voru alveg sniðgengnir og viðskiptum frekar beint í heimabyggðina í hundrað og einum.

Kjötneyslan tekur þó sinn toll og ég finn enn fyrir henni í blóðinu. Hangikjötið á jóladag kippti hjartslættinum upp á við strax eftir fjórða bita. Nú þarf að demba sér í grænmetis- og fiskréttina í nokkra daga áður en gamlárskvöld rennur upp. Það er bara svo og svo mikið hægt að leggja á einn líkama.

- - - -

Karpið í kringum stjórnmálin hefur fengið lágmarksaðgang að eyrum og heilabúi með litlum dagblaðalestri og nær engu sjónvarpsfréttaglápi. Það var kærkomin pása, enda má búast við ýmsu skaki í kringum áramótin og svo eftir þau fram að kosningum í Reykjavík í vor.

- - - -

Og svo er það kotran (sem heitir backgammon á ensku). Fyrr á þessu ári stofnuðum við nokkur félagsskap sem heitir Kotrufélag alþýðunnar (á Fésbók, auðvitað). Haldin hafa verið tvö mót og hið þriðja verður haldið í kvöld kl. 20 á Grand Rokk. Vegleg verðlaun í boði, þar á meðal borðspil frá Spilavinum, þeirri vönduðu verslun. Hvet auðvitað alla til að fjölmenna og taka þátt í skemmtilegu móti í þessu frábæra borðspili.

Skapandi skrif út um allan bæ!

Friday, September 11th, 2009

Höfundur Tvískinnu hefur fært sig upp á skaftið og er að koma sér fyrir víðs vegar í skólakerfinu.

Í leikskóla, hálfan daginn.

Í skapandi skrifum í Listaháskóla Íslands.

Í bókmenntasögu og skapandi skrifum við Kvikmyndaskóla Íslands.

Í skólaheimsóknum í grunnskóla með efni Tvískinnu.

Á öllum skólastigum, sem sagt.

Þar að auki verð ég með námskeið í skapandi skrifum á vegum Mímis sem hefst þann 1. október. Örfá sæti laus!

Allar nánari upplýsingar hér: http://url.is/2bd

Skólar sem nota Tvískinnu í kennslu verða sífellt fleiri – nú síðast hafa bæst í hópinn Austurbæjarskóli, Salaskóli, Verkmenntaskóli Austurlands á Neskaupstað og Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi.

Það er fjör! Áhugasamir skrái sig á námskeið hið fyrsta http://url.is/2bd en ó-áhugasamir éti það sem úti frýs. Í fullum kærleika.

Kveðja,

Davíð

http://tviskinna.ljod.is/

Hvaða skemmtun fæst í kvöld fyrir skitinn þúsundkall?

Thursday, April 2nd, 2009

jr2.jpg

Jonathan Richman, rómaður tónlistarsnillingur og sérvitringur.

Hann spilar í kosningamiðstöð VG, Tryggvagötu 11, kl. 21:00 í kvöld. Ólöf Arnalds hitar upp.

Aðgangur við dyrnar er aðeins kr. 1000-. Gjafverð fyrir góða tónleika.

Sjá nánar hér á Fésbók og svo er örugglega hægt að leita að kappanum á YouTube og Google.