User profile

Status:
Name: Davíð Stefánsson
Nickname: Davíð
Member since: 2009-02-10 16:42:41
Website URL: http://
About me:
 

User comments

Formaður. Þingmaður. Spennandi tímar.

Takk fyrir góðar kveðjur.

Daníel - við tæklum Júróvísjón-textana bara að ári …

Formaður. Þingmaður. Spennandi tímar.

Ég hef alltaf lítinn tíma … bara spurning um forgangsröðun. ;-)

Að afhenda auðlindirnar - XD og XB hefja leikinn að nýju

Sæll Snorri,
þetta voru einfaldlega engir klækir í Silju Báru. Fréttatilkynningin var send að höfðu samráði við nefndina og að beiðni formannsins. Ekki gleypa við öllum söguskoðunum Staksteina.

Það skiptir máli hvort fyrirtækið er kanadískt eða sænskt, einfaldlega vegna þess að verið er að fara á svig við lögin sem gilda.

“Jeg skil ekki af hverju vinstrigrænir láta sjer ekki duga að keyra á þeirri prinsippafstöðu að orkufjelög eigi að vera í eigu hins opinbera.” Þau rök duga einfaldlega ekki frammi fyrir flokkunum sem vilja keyra á fullt í svona einkavæðingarævintýri. Þess vegna verður stundum að grípa til leiðinda hártogana, eins og að hanka framtakið á ákvæðum í lögum.

Að afhenda auðlindirnar - XD og XB hefja leikinn að nýju

Nappaði þessu frá Láru Hönnu bloggara:
Í 12. grein laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri nr. 34/1991 stendur m.a. þetta:

“Nú telur viðskiptaráðherra að tiltekin erlend fjárfesting ógni öryggi
landsins eða gangi gegn allsherjarreglu, almannaöryggi eða
almannaheilbrigði eða… ef upp koma alvarlegir efnahagslegir,
þjóðfélagslegir eða umhverfislegir erfiðleikar í sérstökum
atvinnugreinum eða á sérstökum svæðum, sem líklegt er að verði
viðvarandi, og getur hann þá stöðvar slíka fjárfestingu, enda kunngjöri
hann ákvörðun sína innan átta vikna frá því að honum berst tilkynning
um hlutaðeigandi fjárfestingu, sbr. 7. gr.”

Gylfi Magnússon getur semsagt stöðvað söluna samkvæmt þessu.

Að afhenda auðlindirnar - XD og XB hefja leikinn að nýju

Gott og vel, Snorri. Gefum okkur að þetta sé löglegt. Af hverju stofnaði Magma í Kanada þá ekki fyrirtæki á Íslandi, með íslenska kennitölu? Hefði það ekki verið einfaldara?

Eða - eins og einhver hefur bent á - hefði félagið þá þurft að gefa upp meiri upplýsingar um þá sem raunverulega stjórna félaginu?

Finnst þér ekkert óþægilegt að vita ekkert um þá sem eru raunverulega á bak við fyrirtækið sem er að eignast auðlindir landsins?

Orð dagsins - maður dagsins

Sæll Páll og takk sömuleiðis fyrir gömul kynni.

Skil ekki þetta ljóðræna ‘edrú’ komment. Þú verður að útskýra betur því sumir eru einfaldari en aðrir.

Að moka flór nágranna síns

Sævar:
Auðvitað ætlast maður til þess að flokkur/þingflokkur/ríkisstjórn séu í megindráttum sammála, en þegar upp koma flókin og umdeild mál hljóta þau að verða metin af samvisku hvers og eins. Eller hur?

Að moka flór nágranna síns

Til Jóns S. Sigurðssonar:
Heldur þú að aðrar ríkisstjórnir væru að gera betur við aldraða, öryrkja og venjulegar fjölskyldur? Mín tilfinning er sú að einmitt þessi samsetning - VG og Samfylking - sé líklegust til að passa upp á þessa hópa.

Stórfrétt: Sannleikurinn um eignaskattinn

Sæll Gylfi, takk fyrir stuðninginn við hátekjuskattinn - hann hefur jú bara áhrif á 5% landsmanna.

Ég veit ekki hvaða lending verður í málefnum ESB. Við viljum stíga varlega til jarðar og ýta undir upplýsta umræðu. Það er ekki hægt að gera með offorsi og háhraða. Þjóðin hlýtur að þurfa að þekkja báðar hliðar, kosti og galla, áður en hún kýs? Það er það eina sem VG vill.

Endurómur úr skotgröf í Edinborg

Sæl Anna Sigurðardóttir, það er vel sanngjarnt að klára tilvitnunina í Gísla. Það breytir samt ekki þeirri afstöðu minni að tal hans um „endurnýjun“ innan Sjálfstæðisflokksins var brattur spuni. Hann orðar það best sjálfur með því að kalla þetta kynslóðaskipti.

Það er engin endurnýjun fólgin í því.

Endurómur úr skotgröf í Edinborg

Skúli: Útskýrðu mál þitt örlítið betur svo ég geti svarað? Hvað áttu nákvæmlega við?

Þreyttur, sáttur, spenntur

Auðvitað á að velja besta fólkið í störfin.

Persónukosningar eiga ekki að vera mikið mál, því er ég alveg sammála. Tæknilegi hlutinn er ekki einu sinni flókinn og mjög margir tölvusérfræðingar hafa þróað rafræn kosningakerfi síðustu árin. Það skortir einna helst viljann hjá þeim sem eru vanir gamla kerfinu … þetta er íhaldssemi og ótti við framtíðina og ekkert annað.

Þreyttur, sáttur, spenntur

Sæll aftur, alveg sammála með einstaklingskjörið og fagráðherrana, það er nauðsynlegt að við förum að þróa okkur upp úr flokksræðinu.

En hvað áttu við þegar þú segir „hvað þetta var auðvelt í framkvæmd þegar ég byrjaði í verkfræðinni“? Voruð þið að gera tilraunir með einstaklingslýðræði í verkfræðinni?

Ég ætla ekki að verja gjörðir VG í LÍN og samninganefnd Icesave, enda er ég ekki öllum málum þar kunnugur, en ég trúi Katrínu Jakobsdóttur þó seint til að deila út verkefnum til flokksgæðinga.

Þreyttur, sáttur, spenntur

Sæll Snorri Pétur, takk fyrir það og kveðjur til foreldra þinna. Skil ég þig rétt að þau hafi kosið „hinn“ af því að þú varst ekki búinn að mæra mig? Það er alveg ferlegt …
Bestu kveðjur,
D.

Fésbókin spurði og ég svaraði ...

Takk Árni, fyrir þessar upplýsingar.

D.

Mælaborð íslenska hagkerfisins

Sæll Hjálmar, það er gott að heyra að þessar raddir nái að berast inn í flokkana. Nú skiptir öllu að halda á lofti þessum nýja hugsunarhætti - að leyndin skili engu nema rugli.