„Hvað með ESB?“

Hér er önnur spurning sem barst í gegnum tölvupóst - ég hvet heimsækjendur síðunnar til að spyrja fleiri spurninga:

Sæll Davíð.
Verður þú ekki að viðra afstöðu þína til EB eða bara til aðildarumsóknar á síðunni um hugsjónir þínar.. Það eru margir sem  vilja vita um skoðun frambjóðaenda  á þessu hef ég tekið eftir.

Tja, nú skal segja. Evrópusambandið. Þetta óræða fyrirbæri sem sumir eru með þráhyggju gegn og aðrir með þráhyggju með.

Ég hef lengi haft mjög blendnar tilfinningar gagnvart spurningunni um ESB. Það er ósköp erfitt að mynda sér skoðun á þessu flókna máli þegar það er rætt á trúarbragðagrundvelli þeirra tveggja andstæðu afla sem bítast - svona eins og að mynda sér skoðun á trúarbrögðum með eintóma bókstafstrúarmenn við borðið.

Sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa, sagði einhver.

En hver er sannleikurinn? Gæti ég fengið smjörþefinn af honum? Er einhver til í að hjálpa mér í átt að sannleikanum? Getum við prófað ævaforna aðferð sem vill stundum leiða mann í þá átt? Hverjir eru kostir og gallar við ESB?

Ég gerði óformlega skoðanakönnun í kringum mig og fékk allskyns viðbrögð. Þau eru skráð hér fyrir neðan - og þessi listi er vitanlega alls ekki tæmandi. Óska eftir fleiri kostum og göllum í athugasemdakerfi:

ESB

Ég er sem sagt á því að ESB aðild sé ekki töfralausn á núverandi vandamálum Íslands - en til að geta tekið afstöðu þurfum við haldbærar upplýsingar. Og þær fáum við varla nema í gegnum aðildarviðræður.

Að endingu er hér tengill á viðamikla umfjöllun Morgunblaðsins um Evrópusambandið frá því í janúar. Ég pósta henni hér með öllum fyrirvörum um efnistök og hlutdrægni.

Senda á Facebook
  • Facebook

Leave a Reply