Vænn fjöldi frambjóðenda hjá VG í Reykjavík

Um helgina rann út framboðsfrestur hjá VG í Reykjavík og ekki hægt að vera annað en ánægður með fjölda frambjóðenda. Nítján einstaklingar bjóða sig fram til starfa fyrir hönd Vinstri-grænna í borgarmálunum og geri aðrir flokkar (og fjölmennari) betur. Til samanburðar eru frambjóðendur átján hjá Sjálfstæðisflokki og þrettán hjá Samfylkingu.

Sjálft forvalið fer fram þann 6. febrúar og skráningum í félagið lýkur þann 27. janúar næstkomandi (hér er hægt að skrá sig í flokkinn).

Kynningarfundir verða haldnir á vegum VGR á næstunni og um að gera að fylgjast með fréttum af þeim á www.vg.is.

Hér er listi yfir alla frambjóðendur.

Senda á Facebook
  • Facebook

Leave a Reply