Um leiðindaleiðara Fréttablaðsins

Það iðaði eitthvað undir skinninu á mér í morgun þegar ég las leiðara Fréttablaðsins við morgunverðarborðið. Leiðarinn ber yfirskriftina „Héraðsljósmæður“, sem er mjög ljóðrænt sé til þess tekið að hann fjallar um flokksráðsfund VG á Akureyri um helgina og niðurstöður þess sama fundar, einkum þá staðreynd að ekki var ályktað sérstaklega um IceSave.

Í vinnunni í morgun dundaði ég mér við að semja færslu í huganum um leiðarann, en um leið og ég kom heim rakst ég á þessa hnitmiðuðu bloggfærslu sem segir allt sem ég hefði viljað segja:

„En hvað sem leiðarahöfundi Fréttablaðsins kann að finnast um þá staðreynd að VG hafi ekki ályktað sérstaklega um Icesave um helgina þá er skrítið að hann skuli um leið velja að gera lítið úr öðrum ályktunum fundarins. Það hefði nefnilega verið í hæsta máta óeðlilegt ef VG hefði ákveðið að álykta ekki um neitt af því að Icesave málið sé svo stórt. Eða á að setja allt annað á ís á meðan fundin er lausn í einu máli?

Grasrót flokksins ber að standa sína vakt, minna á fyrir hvað Vinstri græn standa og hvers vegna hreyfingin fékk þá kosningu sem hún fékk. Það er ekki hlutverk ályktana á flokksráðsfundi að koma með fullbúnar lausnir á öllum viðfangsefnum sem fyrir liggja. Þarna er hins vegar tækifæri flokksfélaga að koma sínum hugðarefnum á framfæri. Og þegar skerðing á fæðingaþjónustu er í umræðunni þá hlýtur að vera eðlilegt að minna á mikilvægi þjónustu við fæðandi konur. Og þegar atvinnusköpun er í fullum gangi þá er hlutverk hins femíníska flokks að minna á hversu kynjaður íslenskur vinnumarkaður er og þá um leið allar aðgerðir í atvinnuuppbyggingu. Og þegar fjölmiðlar eru í mikilli kreppu og blaðamenn missa vinnuna í hrönnum þá er eðlilegt að vinstri sinnaður flokkur taki afstöðu með launafólki og frjálsri blaðamennsku. Þetta er veganestið.“

Hér er pistillinn í heild sinni.

Senda á Facebook
  • Facebook

Leave a Reply