Um hvað verður kosið í vor?

Tja, það veit fjandinn, og ekki er ég í beinu talsambandi við hann. Ég vona að minnsta kosti að það verði ekki flugvallarmálið, þótt tölvupóstar sem okkur frambjóðendum hjá VG hafa borist undanfarna daga bendi einmitt til þess.

En … á morgun, laugardag, verður að Suðurgötu 3 haldinn fundur á vegum VGR undir yfirskriftinni: „Um hvað verður kosið í vor?“ Þetta verður á léttu nótunum, bara svona til að hita upp fyrir komandi forval og komandi kosningar.

Allir velkomnir, flokksbundnir eður ei, á Suðurgötu 3 kl. 11-13. Heitt á könnu og eitthvað meððí.

http://www.vg.is/frettir/a-dofinni/nr/4419

Senda á Facebook
  • Facebook

Leave a Reply