REI og MAGMA - vinnubrögðin sem vilja gleymast

Þetta skjal er ekki til - Magma

Í samningnum segir orðrétt:

Trúnaður

Aðilar eru sammála að gera sitt besta til að halda tilveru og innihaldi þessa Samnings í ströngum trúnaði og að veita engar upplýsingar varðandi þennan samning til annarra en stjórnarmeðlima, bæjarfulltrúa/meðlima bæjarstjórna/borgarráðs, yfirmanna, starfsmanna, og bókhaldslegra, lagalegra og fjárhagslegra ráðgjafa eins og með þarf til að meta þennan Samning. Þar að auki gera Aðilarnir sér grein fyrir því að Félagið og/eða hluthafar í Félaginu geta krafist afrits af þessum Samningi til þess að geta ákveðið hvort þeir vilji nýta eða afsala sér forkaupsrétti í samræmi við samþykktir Félagsins.

- - -

Gaman að þessu. Mér finnst eins og þetta sé alveg gleymt. Mér finnst eins og ekkert hafi náðst að ræða það í þessari kosningabaráttu hvernig vinnubrögðum hefur verið beitt í borginni undanfarin ár, sérstaklega þegar höndlað er með skipulagsmál og auðlindir almennings.

Mér finnst eins og einhverjir hljóti að fara illa út úr því þegar sérstök rannsóknarnefnd um rekstur borgarinnar hefur lokið störfum. Þessir sömu einhverjir bjóða sig samt fram núna og tala um stöðugleika - áfram.

Picture 2

Þessi mynd hefur gengið manna á milli í dag.  Hún er mjög dramatísk - þess bera merki andlit fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í bakgrunninum.

Svona til upprifjunar er hér bloggfærsla Sóleyjar Tómasdóttur frá því í ágúst í fyrra. Hún tekur saman í stuttu máli allt það spillingarklúður sem gekk undir nafninu REI en hefur núna fengið umpólun og endurskírn og heitir MAGMA:

Muniði eftir REI?

REI-málið var stærsta klúður Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks í sveitarstjórnarmálum fram til þessa - enda sprakk það í andlitið á þeim, meirihlutinn sprakk, borgarstjórinn missti traust síns eigin fólks og borgarbúa og í kjölfarið tók við margra mánaða vinna við uppgjör málsins á hinum pólítíska vettvangi.

Fyrirhuguð sameining REI og Geysis Green Energy var unnin í loftköstum, málin voru illa eða ekkert kynnt þeim sem raunverulega ábyrgð báru í málinu og vinnubrögðin miðuðu öll við hagsmuni einkaaðilanna. Asinn, leyndin og samráðsleysið var harðlega gagnrýnt.

Þess utan var hagsmuna almennings ekki gætt í samningnum sjálfum, þar sem Geysir Green Enenrgy hefði fengið einkaafnot af þekkingu og mannauð Orkuveitu Reykjavíkur, hefði fengið vörumerkið til afnota og fleira og fleira.

Síðan eru liðin tvö ár. Nú hefur verið boðað til fundar í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, þar sem til stendur að samþykkja kaup fyrirtækjalepps í Svíþjóð á hlut Orkueitunnar í HS-orku. Engin gögn liggja fyrir vegna málsins. Ekki verður veittur lengri frestur til að kanna möguleika á opinberri eigu til hlítar. Formaður stjórnar leggur mikið upp úr því að drífa málið af - og forsvarsmaður Magma stærir sig af árangri sínum gegnum tíðina í þágu hluthafa.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ætlar að selja auðlindir almennings fyrir kúlulán með veði í skúffufyrirtæki í Svíþjóð. Fjárhagslegur ábati er vandséður - og ljóst að samfélagsleg áhrif skipta ekki máli.

Stundum er talað um að kjósendur hafi gullfiskaminni. Ég efast um það. Í þessu tilfelli virðist sem minni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sé farið að förlast.

Senda á Facebook
  • Facebook

Leave a Reply