Undarlega tíkin - hvatning til alvöru kjósenda
Ég hóf formleg og full afskipti af pólitík (þeirri alræmdu tík) fyrir rúmu ári.
Ein af fjölmörgum ástæðum þess að ég valdi VG sem vettvang var sú staðreynd að VG er flokkur sem hefur kvenfrelsi sem eina af sínum grunnstoðum. Í mörg ár hef ég verið rammfemínískur og furðað mig á því hversu margir (og margir vel þenkjandi einstaklingar) vilja ekki taka undir það sjónarmið að ójafnvægið á milli kynjanna sé enn alvarlegt.
Það er alveg rétt að við höfum náð árangri - en miklu betur má ef duga skal.
Þess vegna fagnaði ég því mikið að Sóley Tómasdóttir fékk umboð frá félögum í VG til að leiða listann í borgarstjórn. Þá vissi ég að VG var tilbúið til að umfaðma femínisma sem raunverulega hugmyndafræði.
Svo hófst kosningabaráttan með tilheyrandi niðurrifi. Sem virðist því miður vera að takast upp að einhverju marki.
Það hefur tekist að mála Sóleyju Tómasdóttur upp sem hættulega konu sem hati karlbörn. Konu sem vilji karlmönnum allt illt. Og svo framvegis og svo framvegis.
Að Sóley sé málefnalegur stjórnmálamaður sem hafi þegar sannað sig í borgarkerfinu og að hún berjist af einurð fyrir réttindum bágstaddra hefur ekki verið fjallað um.
- - - -
Í þessari lokafærslu minni fyrir lok kosninga vil ég hvetja alvöru karlmenn og alvöru konur sem vilja alvöru jafnrétti til að taka ekki trúanlegar ódýrar og grimmilegar gróusögur sem eru á sandi byggðar.
Ég vil hvetja alvöru kjósendur til að þora að kjósa VG með Sóleyju innanborðs.

