Áherslumál

Ég vil:

- að íslenskt samfélag byggist á blönduðu hagkerfi þar sem almenn viðskipti lúta markaðslögmálum undir eftirliti en ríkið rekur öflugt velferðarkerfi

- að ein velferðarstofnun sjái til þess að allir Íslendingar – almennir borgarar, lágtekjufólk, aldraðir, öryrkjar og atvinnulausir – eigi rétt á mánaðarlegri lágmarksframfærslu og að samningar á vinnumarkaði miði við að 40 stunda vinnuvika nægi öllu launafólki til að lifa mannsæmandi lífi

- að Alþingi verði styrkt með því að ráðherrar sitji ekki á þingi og að með þjóðaratkvæðagreiðslu fái þjóðin vald í hendurnar til að koma beint að ákvarðanatöku og knýja fram kosningar

- að eðlilegur hluti af starfi ráðherra og alþingismanna sé að mæta á opna borgarafundi með almenningi til að útskýra gjörðir sínar og verja þær

- að VG fagni hugmyndum um minna flokksræði og styðji við þróun beins lýðræðis með því að ýta undir notkun þess í starfi innan flokksins

- að dæmigerð kvennastörf á borð við leikskólakennslu og öldrunarþjónustu séu metin að verðleikum og að virðingin gagnvart þessum störfum komi fram á launaseðlum þeirra sem þeim sinna

- að innan opinberra stofnana gildi þriggja þrepa launasamhengi og hæstu laun séu aldrei meira en þrisvar sinnum hærri en lægstu laun

- að eftirlit með fjármálaviðskiptum sé raunverulegt og að Fjármálaeftirlitið og efnahagsbrotadeild lögreglunnar fái nægt fjármagn til að endurskapa traust almennings gagnvart fjármálastofnunum

- að karlmenn stígi í auknum mæli inn í jafnréttisbaráttuna sem hingað til hefur verið drifin að stærstum hluta áfram af konum

- að auðlindir Íslands séu sameign þjóðarinnar og verði ekki framseldar einstaklingum eða fyrirtækjum

- að Ísland sé herlaust og friðelskandi land sem tekur harða afstöðu gegn hvers kyns stríðsrekstri

- að komið verði á eftirliti með gjörðum opinberra starfsmanna til að tryggja að þeir komist ekki upp með afglöp í starfi, t.d. með því að auka vald umboðsmanns Alþingis

- að komið sé í veg fyrir pólitískar ráðningar embættismanna, t.d. með óháðri og faglegri stofnun sem sjái alfarið um mannaráðningar ríkisins

- að grunnhugsun í öllum samfélagsmálum sé jöfnuður, öllum til handa

Senda á Facebook
  • Facebook