Menntun - menning
Menntun
Ég gekk í Árbæjarskóla, Flataskóla og Hólabrekkuskóla og lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 1995.
Veturinn 1998-1999 kláraði ég fyrsta ár í enskunámi við Háskóla Íslands og árin 2003-2005 lauk ég BA gráðu með tveimur árum í bókmenntafræði. Lokaritgerðin fjallaði um höfundarverk Braga Ólafssonar og heitir Þar sem maður býr.
Menning
Ég hef verið afar bókhneigður frá unga aldri og strax í framhaldsskóla tók ég mikinn þátt í menningarlífi hverskonar, t.d. ræðumennsku, kórstarfi og í útgáfu ýmissa skólablaða.
Frá útgáfu fyrstu ljóðabókarinnar minnar árið 1996 hef ég tekið virkan þátt í þeirri síkviku starfsemi sem fer fram á meðal ljóðskálda og áhugafólks um ljóð. Í kringum aldamótin datt mér í hug hvort ekki væri sniðugt að koma ljóðum fyrir á netinu og eftir mikið maus í samvinnu við tvo félaga mína fæddist vefurinn ljóð.is, þann 16. nóvember 2001. Honum hefur verið haldið úti í sjálfboðavinnu sleitulaust síðan og þar geta allir Íslendingar sett til sýnis eigin ljóð. Vefurinn er mjög mikið notaður og verður að líkindum loksins uppfærður á þessu ári.
Ljóðabækurnar mínar hafa allar komið út undir merkjum Nykurs, en svo nefnist sjálfsútgáfuforlag sem Andri Snær Magnason og Björgvin Ívar Guðbrandsson settu á fót árið 1995. Nykur er hálfgert samvinnubandalag ungra og sjálfstæðra skálda og undir þeim merkjum hafa komið út hátt í þrjátíu bækur.
Eftir að ég lærði bókmenntafræði hef ég sótt þing og ráðstefnur sem tengjast fræðunum, flutt fyrirlestra, sinnt sýningastjórn, tekið viðtöl og skrifað greinar meðal annars fyrir RÚV, Lesbók Morgunblaðsins og Tímarit Máls og menningar.

