Davíð Stefánsson

Ég býð mig fram í 2.-3. sætið á listum VG í Reykjavík í krafti eigin reynslu, hugsjóna og heiðarleika. Ég er ýmsu vanur þegar kemur að félagsstarfi, bæði á eigin vegum og í samstarfi við aðra, og hef til margra ára unnið sjálfstætt í ýmsum menningartengdum verkefnum.

Ég kem hreint og beint fram og hef þá einföldu trú að kærleikur, mannvirðing og heiðarleiki borgi sig á öllum sviðum lífsins – líka í stjórnmálum. Í því ljósi hef ég sett saman heilindayfirlýsingu sem ég mun fara eftir, bæði í kosningabaráttu fyrir forvalið, í kosningabaráttu fyrir Alþingiskosningar og í starfinu sem þingmaður, ef boginn sem ég spenni drífur svo langt. Sumir vilja kalla það barnaskap að fara inn í stjórnmál með slíkar hugmyndir … það verður bara að vera þannig. Ég minni bara á að fyrsta setningin í yfirlýsingunni er bundin í stjórnarskrá og ætti í raun að vera sjálfgefið viðmið. Ég býð mig fram því ég vil vera samfélagsþjónn.

Það gildir um mig eins og marga aðra Íslendinga að bankahrunið vakti mig til lífsins. Ég hef alltaf haft áhuga á stjórnmálum og sterkar skoðanir á því hvernig samfélagið okkar er rekið. Framganga ýmissa stjórnmálamanna í kjölfar hrunsins leiddi í ljós að ýmislegt er athugavert við það hvernig samskiptum ráðamanna og almennings er háttað - það glitti skyndilega í djúpa og breiða gjá og valdaleysi venjulegra borgara varð áþreifanlegt og sársaukafullt.

Nú þegar frjálshyggjan hefur sýnt sitt rétta andlit og runnið sitt „blómaskeið“ á enda er ég sannfærður um að Íslendingar geta sameinast um þá grunnhugsjón jafnaðar sem VG hefur alla tíð staðið fyrir. Núna er tíminn fyrir opnari vinnubrögð, nýja samvinnuhugsun í stjórnmálum og á öllum samfélagssviðum og að almenningur geti haft meiri áhrif á stórar ákvarðanir á milli kosninga. Eitthvað er einfaldlega ekki að virka sem skyldi - við þurfum að þora að laga.

- - - -

Ég er fæddur á Akureyri þann 14. október 1973 en flutti um tveggja ára aldur til höfuðborgarinnar og hef búið þar síðan. Fyrstu æviárin bjó ég í Árbæ og Garðabæ, en árið 1982 flutti fjölskyldan í Hólahverfi í Breiðholti. Að loknu stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti flutti ég á Laugaveginn og hef búið í grennd við miðbæinn allar götur síðan.

Börnin mín heita Ása Rut, fædd árið 1991 og búsett í Svíþjóð, og Askur Ari, fæddur árið 2003. Ég bý með Höllu Gunnarsdóttur í Norðurmýrinni.

Ég hef sinnt fjölbreytilegum störfum í gegnum tíðina og komið víða við á menningarsviðinu. Ég sit í stjórn Rithöfundasambands Íslands, er bókmenntafræðingur, hef gefið út þrjár ljóðabækur og eina kennslubók og rek eigið textalækningafyrirtæki sem ber nafnið Yddarinn.

Senda á Facebook
  • Facebook