Félagsstörf - fyrri störf
Félagsstörf
Frá árinu 2006 hef ég setið í stjórn Rithöfundasambands Íslands, fyrstu tvö árin sem varamaður, en aðalmaður í stjórn frá árinu 2008.
Ég sat í miðnefnd Samtaka herstöðvaandstæðinga frá 2005-2006.
Árið 2005 gerðist ég félagi í Vinstrihreyfingunni-grænu framboði og sat minn fyrsta landsfund sem landsfundarfulltrúi það sama ár.
Eftir bankahrunið í október á síðasta ári var ég svo heppinn að detta inn í skipulagshóp fyrir opnu borgarafundina. Það starf var ómetanlegur skóli og sýndi mér fram á hvílíkur kraftur og hugmyndaauðgi býr í venjulegum Íslendingum þegar neyðin kallar.
Frá því snemma á þessu ári hef ég sett kraft minn í hugmyndavinnu með Lýðveldisbyltingunni. Þar hefur farið fram síðustu vikur merkileg vinna sem hefur einkennst af gagnsæi, opnum samskiptum og beinu lýðræði. Markmið hreyfingarinnar er að endurskoða leikreglurnar í íslensku lýðræði og með hópavinnu og opnum umræðum á netinu hefur tekist að sjóða saman stefnuskrá sem hefur verið send til allra stjórnmálaflokka og til nefndarinnar sem skipuleggur frumvarp um stjórnlagaþing.
Fyrri störf
Ég hef unnið sem kerrudrengur, vinnumaður í sveit, naglhreinsari og handlangari í byggingarvinnu, lagermaður, þjónn, kokkur, starfsmaður á hjólbarðaverkstæði, sendill, pítsubakari á Ítalíu (landinu), blaðamaður, pistlahöfundur, kaffibarþjónn, vaktstjóri, uppvaskari, tryggingasali, barþjónn, bóksali, aðstoðarmaður kvikmyndagerðarmanna, skiltagerðarmaður, ritstjóri, bókaútgefandi, verkefnastjóri og grafískur hönnuður.
Síðustu árin - fyrir og eftir háskólanám sem ég lauk árið 2005 - hef ég skrifað töluvert af greinum, m.a. fyrir Lesbókina og Tímarit Máls og menningar og starfað sem verkefnastjóri og grafískur hönnuður hjá Augljósri merkingu. Ég yfirgaf þann ágæta vinnustað í september 2008 til að stofna mitt eigið textavinnslufyrirtæki sem ber nafnið Yddarinn ehf.

