Heilindi
Ég mun ávallt kjósa samkvæmt eigin sannfæringu í öllum málum og styðja frumvörp annarra stjórnmálaflokka ef þau samræmast minni sannfæringu.
Ég mun meta aðra stjórnmálamenn eftir orðum þeirra og gjörðum, hvorki eftir flokksskírteini þeirra né stefnu þess flokks sem þeir tilheyra.
Ég mun ekki beita óvönduðum meðulum - hvorki í kosningabaráttu innan flokksins né í kosningabaráttu við aðra flokka.
Ég mun svara beinum spurningum sem ég get svarað og ekki reyna að tala mig í gegnum spurningar sem ég get ekki svarað.
Ég mun axla ábyrgð á eigin gjörðum.

